Skráning 2012 Fréttir Leikir & úrslit Myndir Flickr
Vodafone Rey Cup
10 ára afmæli fagnað 2002-2012!



Hátíðarár er framundan þegar haldið verður upp á að tíu ár eru liðin frá upphafi Rey Cup nú Vodafone Rey Cup. Auk þátttöku erlendra félagsliða koma reyndir erlendir dómarar að dómgæslu á Rey Cup auk íslenskra kollega þeirra. Fegurð mótssvæðisins í Laugardal og veðursæld hefur löngum verið dásömuð svo og frábær vallar- og gistiaðstaða í Laugardal og nágrenni.

Dagsetning: 25. – 29. júlí 2012.
Staðsetning:
Laugardalur, Vodafone Rey Cup, Engjavegi 7, 105 Reykjavík.

Þátttökugjald óbreytt 3ja árið í röð í tilefni afmælisárs



Þátttökugjald:
Kostnaður á hvern leikmann vegna þátttöku á Rey Cup.



1. Þátttaka í Rey Cup kr. 11.000,-

Gjaldið felur í sér aðgang að öllum dagskrárliðum.
Á lokahóf/stórdansleik/BBQ/sundlaugapartý. Að auki: Frír aðgangur að Laugardalslaug og í Fjölskyldu- og húsdýragarði. Þátttakendur fá einnig Rey Cup bol.


2. Þátttaka með fæði kr. 15.000,-

Að viðbættu því sem gjald 1 innifelur er greitt fyrir morgunmat 4 daga og tvær góðar máltíðir, að auki er BBQ stórgrillveislan.


3. Þátttaka með fæði og gistingu kr. 18.500,-

Að viðbættu því sem gjald 2 innifelur er greitt fyrir gistingu í skólum í 4 nætur.



Mótsgjald:
Mótsgjald kr. 10.000,-

Mótsgjald er sérstök greiðsla af hverju keppnisliði. Fjöldi skráðra leikmanna í hverju keppnisliði getur mest verið 16 leikmenn.


Staðfestingargreiðsla:
Staðfestingargreiðsla er ætlað að vera trygging/staðfesting á þátttöku viðkomandi keppnisliðs. Hvert keppnislið þarf að inna greiðsluna af hendi til að þátttaka teljist fullgild og skráningartæk. Staðfestingargreiðslan reiknast sem innborgun á þátttöku- og mótsgjaldi en er ekki viðbótarkostnaður. Greiðslan er óafturkræf ef viðkomandi keppnislið fellur frá þátttöku. Staðfestingargreiðsla er kr. 30.000,-


„Fótbolti og fjör!“


„Fótbolti og fjör!“ er hugmyndafræði Vodafone Rey Cup, fótbolti á daginn og fjölbreytt skemmtun á hverju kvöldi, sundlaugarpartý, skemmtibolti, grillpartý í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, kvöldmatur á Grand Hótel og stórdansleikur á Hótel Íslandi, Broadway allt innifalið í þátttökugjaldinu. Að auki alls konar tilboð í gangi, eins og í keilu, bíó og lazertag.


Öllum liðum tryggðir a.m.k. 6 leikir!

Leikinn er 11 manna bolti en einnig boðið upp á 7 manna bolta sé næg þátttaka. Leiktími er 2x25 mín.


Aldurhópar 2012:

Aldurhópar 3. og 4. flokks karla og kvenna (yngra og eldra ár)
U14 leikmenn fæddir 1998-1999
U16 leikmenn fæddir 1996-1997



Dagskrá

Dagskrá Vodafone Rey Cup 2012 má skoða hér.


Skráning þátttöku:

Skrá lið til þátttöku


Hafðu samband

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið reycup@reycup.is eða hringja í eftirfarandi símanúmer: 616 0111 • 580 5902 • 616 0112.




FRÉTTIR
Heildarúrslit Vodafone Rey Cup 2011

Vodafone ReyCup þakkar öllum þátttakendum fyrir frábært mót. Mótið í ár var það fjölmennasta sem haldið hefur verið á 10 ára ferli keppninnar. Um 1.700 þátttakendur mættu í Laugardalinn og „nærsveitir“, 120 lið sem kepptu í 12 flokkum. Á lokahátíðinni voru verðlaun veitt fyrir þrjú eftstu sætin í hverjum flokki. Auk þess sem háttvísisverðlaun og verðlaun fyrir prúðasta liðið utan vallar sem innan voru veitt. Smellið á lesa til að skoða skiptingu verðlaun.
Hér má sjá myndband af Fótbolta.net um mótið.


Lesa
KR meistari í 3. fl. karla, 2. árið í röð

KR-ingar endurtóku leikinn frá því í fyrra og fögnuðu sigri í 3. flokki karla A-liða. Eftir 0-0 jafntefli í venjulegum leiktíma þar sem "liðin stefndu ákveðið í vítaspyrnukeppni" eins og einum áhorfenda varð að orði tók við vítaspyrnukeppni. Keflvíkingar misnotuðu tvær fyrstu spyrnur sínar, slá og varið, á meðan að KR-ingar skoruðu úr sínum.


Lesa
Blikastúlkur sigursælar á Rey Cup

Blikastúlkur fögnuðu sigri í úrslitum 3. flokks kvenna hjá Aliðum í dag eftir vítaspyrnukeppni í leik gegn Þór frá Akureyri. Segja má að sagan frá því úrslitum 4. flokks kvenna hafi endurtekið sig. Blikar unnu lið Þórs frá Akureyri. Til hamingju Blikar.


Lesa
Víkingar ReyCup meistarar í 4 fl. karla A

Víkingar eru Vodafone ReyCup meistar í 4. flokki karla eftir hörku spennandi leik gegn Þrótti. Venjulegum leiktíma lauk með 1-1 jafntefli en Víkingar höfðu betur í vítaspyrnukeppni. Hetja þeirra var markvörðurinn sem varði tvö víti þróttara.


Lesa
Blikastúlkur ReyCup-meistarar í 4 fl. kvenna

Blikastúlkur urðu í morgun Vodafone ReyCup meistarar í 4. flokki kvenna A-liðum eftir hörkuleik gegn Þór Akureyri. Lengi vel mátti ekki á milli sjá hvort liðið færi með sigur af hólmi. Blikar reyndust þó sterkari á lokamínútunum og skorðu mörkin á síðustu 7 mínútunum. Til hamingju Blikar.


Lesa




LEIKIR & ÚRSLIT
Allir leikir



Nýjustu úrslit
Dags.TímiHeimalið ÚtiliðLeikvöllur
24.07.2011 14:00
Höttur   
1 - 0 Þór TBR - C4
24.07.2011 14:00
Þór   
2 - 1 ÍR Sl.br.7 m - C3
24.07.2011 13:00
ÍBV   
1 - 4 ÍA Víkingsvöllur
24.07.2011 13:00
Fjölnir   
0 - 3 Víkingur S.braut - C3
24.07.2011 13:00
ÍBV   
1 - 4 Keflavík TBR - C4
MYNDBÖND



MYNDIR
Úr albúminu:
Laugardagur 2009 - Í lok dags




Skoða öll albúm


REY CUP | Félagshúsi Þróttar | Laugardal, 104 Reykjavík | Sími: 580-5903 | Netfang: reycup@reycup.is


REY CUP VEFURINN BYGGIR Á D10 VEFBÚNAÐI